• BÓKIN
  • SÝNISHORN
  • KAFLI
  • DÓMAR
  • HÖFUNDUR
  • English English
  • Íslenska Íslenska
  • Þórarinn Leifsson fær barnabókaverðlaun menntaráðs 2010
  • Dómur: Það er barnanna að breyta heiminum
  • Bókasafn ömmu Huldar kemur út í Danmörku
  • Jólagjöfin í ár
  • Viðtöl og umfjallannir
  • Dómar
  • Bókin kemur út 20. október
more

Þórarinn Leifsson fær barnabókaverðlaun menntaráðs 2010

Submitted by totil on mán, 05/10/2010 - 21:10

2010 Literary award: Thorarinn Leifsson in the company of city officials, the jury and the publisher.Þórarinn Leifsson hlaut í dag barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar fyrir Bókasafn ömmu Huldar sem hann jafnframt myndskreytti.Verðlaun fyrir bestu þýðingu barnabókar fær Jón Hallur Stefánsson fyrir bókina Þjófadrengurinn Lee Raven eftir Zizou Corder.

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri afhenti barnabókaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Höfða í dag að viðstöddum fjölmörgum gestum. Meðal þeirra voru sigurvegarar í Stóru upplestrarkeppninni sem lásu upp úr verðlaunabókunum. Þetta er í 38. sinn að yfirvöld menntamála í Reykjavík verðlauna rithöfunda og þýðendur barnabóka fyrir afburða góðar barnabækur í þeim tilgangi að vekja athygli á mikilvægi góðra bókmennta í uppeldisstarfi. Úthlutunarnefnd var að þessu sinni skipuð Þórdísi K. Pétursdóttir formanni, Felix Bergssyni og Lilju Margréti Möller.

Í umsögn dómnefndar um verðlaunabókina Bókasafn ömmu Huldar segir m.a.: „Þórarni Leifssyni hefur tekist að semja vel uppbyggða, frumlega, skemmtilega og ekki síst fræðandi sögu. Bókasafn ömmu Huldar er því vel til þess fallin að auka áhuga barna á lestri góðra bóka.“

Í umsögn um þýðingu barnabókarinnar Þjófadrengurinn Lee Raven segir m.a.: „Jóni Halli hefur tekist einkar vel upp við þýðinguna sem er lipur og á nútímaíslensku. Stíllinn er til fyrirmyndar og sýnir hversu góð tök þýðandi hefur á blæbrigðum íslensks máls.“

» » Sjá vef Reykjavíkurborgar
  • totil's blog
  • English English


„Þetta er vísindaskáldsaga fyrir börn um kreppuna, skrifuð af brjáluðu hugmyndaflugi og endalausri virðingu fyrir börnum.“
Ásgeir H. Ingólfsson/ kistan.is


Bókasafn ömmu Huldar á Facebook

Tenglar

  • Leyndarmálid hans pabba
  • Heimasíða höfundar
  • Bókaormar
  • Barnavefur Barnung
  • Sögueyjan
© Thorarinn Leifsson / Forlagid | For publishing rigths contact ua@forlagid.is | Other info: totil@totil.com